Lið Draupnis frá Akureyri hefur ákveðið að draga lið sitt úr keppni í 1. deild kvenna í sumar. KSÍ mun því færa lið ÍRð úr a-riðli yfir í b-riðil. Vegna þessa falla því leikir Álftaness við ÍR niður en leikjaniðurröðun sumarsins heldur sér að öðru leiti.
Mfl.kv. lék sinn fyrsta leik á Íslandsmótinu í dag. Leikið var gegn Keflavík og fór leikurinn fram á Nettóvellinum í Keflavík.
Stelpurnar léku undan vindi í fyrri hálfleik og fóru rólega af stað. Keflavík sótti meira í byrjun en eftir 15 mínútur komust okkar stelpur meira og meira inn í leikinn. Þær voru óheppnar að skora ekki þrisvar en tvisvar björguðu Keflavíkurdömur á línu og einu sinni brást okkur bogalistinn einar á móti markmanni. Staðan í hálfleik var 0 – 0 og Álftanes búið að eiga hættulegri færi í leiknum.
Í síðari hálfleik var Keflavík meira með boltann undan sterkum vindinum en sköpuðu sér ekki nein færi. Þeim tókst þó að setja mark sem kom upp úr engu, fyrirgjöf frá hægri fór hátt í loft og tók vindurinn boltann og setti hann undir þverslánna í fjærhornið.
Keflavík sótti það sem eftir lifði leiks en bættu ekki við mörkum.
Stelpurnar sýndu það í þessum leik að þær standa öðrum liðum í riðlinum jafnfætis og útlit er fyrir skemmtilegt sumar með fullt af spennandi leikjum.
Ekki verður hjá því komist að minnast á dómara leiksins í dag en hann átti afleitan dag án þess að það yrði til hagnaðar fyrir annað liðið. Þakka má fyrir að ekki urðu alvarleg meiðsl í leiknum því allt var leyft framan af leik og sumar ákvarðanir dómarans voru alveg óskiljanlegar. Vonandi er þetta ekki dómgæsla sem á eftir að sjást í deildinni í sumar og vonandi hefur umræddur dómari aðeins átt slæman dag.
Þökkum Keflavík fyrir góðan leik, ÁFRAM ÁLFTANES.
Mfl.kv. hóf keppni á þessu sumri í gær þegar þær tóku á móti ÍR í Valitor bikarnum. Liðin eru saman í riðli í 1. deildinni í sumar og því var þessi leikur ágætis mælikvarði á sumarið.
Stelpurnar okkar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en það var ÍR sem átti hættulegasta færi hálfleiksins þegar leikmaður þeirra slapp ein inn fyrir vörn Áfltanes en Sigrún Ólöf í markinu lokaði vel og skot ÍR fór í stöng.
Í síðari hálfleik jafnaðist leikurinn aðeins en Álftanes var samt sterkari. Það var svo á 75. mínútu að Ashley Hall slapp ein inn fyrir vörn ÍR og skoraði sigurmark leiksins.
Stelpurnar eru því komnar áfram í bikarnum og mæta ÍA í næstu umferð þann 31. maí á Bessastaðavelli.
Sigrún Auður fyrirliði var kosin maður leiksins og fékk að launum gjafabréf.
Næsti leikur hjá stelpunum er á laugardag þegar þær leika við Keflavík í 1. umferð Íslandsmótsins. Leikurinn fer fram á Nettóvellinum í Keflavík og hefst kl. 14.
Vegna snjóþunga á Leiknisvelli hefur Lengjubikarleiknum hjá mfl.kv. við ÍA verið frestað. Hann verður leikinn á Ásvöllum á morgun, sunnudag, kl. 18:00.
Stelpurnar lönduðu sínum fyrsta sigri í Lengjubikarnum á þriðjudag þegar þær sigruðu HK/Víking 1 – 0. Jafnræði var með liðunum framan af leik en þegar líða tók á voru okkar stelpur sterkari aðilinn. Það var Ashley Hall sem skoraði sigurmarkið undir lokin eftir að hafa sloppið ein inn fyrir vörn HK/Víkings.
Næsti leikur og jafnframt sá síðasti í Lengjubikarnum er á morgun gegn ÍA. Leikið er á Leiknisvelli og hefst leikurinn kl. 14:00.
Í kvöld spiluðu stelpurnar síðari leik sinn í æfingaferðinni til Egilsstaða. Leikurinn var gegn Hetti og unnu Álftanesstelpurnar stórsigur, 0 – 7. Stelpurnar léku undan sterkum vindi í fyrri hálfleik og gekki heldur illa að hemja boltann. Tvö mörk komu í fyrri hálfleik og voru þau bæði eftir hornspyrnur. Fyrst skoraði Erna Birgisdóttir og síðan Katrín Ýr Árnadóttir.
Í síðari hálfleik gekk stelpunum nokkuð vel að leika gegn vindinum og skorðu 5 mörk í hálfleiknum. Erna skoraði tvö mörk, það seinna úr víti, og fullkomnaði sína fyrstu þrennu með meistaraflokki. Sigrún Auður, sem alla jafna leikur sem vinstri bakvörður, fór í stöðu framherja síðustu 15 mínúturnar og setti tvö mörk áður en Halldóra Bjarnadóttir setti punktinn yfir i-ið með sjöunda markinu.
Þessi lið leika saman í riðli í sumar en erfitt er að meta styrk Hattarliðsins út frá þessum úrslitum þar sem þær eiga eftir að fá til sín 3 útlendinga fyrir sumarið og einnig vantaði þær 2 -3 aðrar stelpur í liðið í kvöld.
Frábær sigur í lok frábærrar æfingaferðar. Stelpurnar vilja þakka Hetti og fólkinu að Eyvindará fyrir frábærar móttökur.
Eins og komið hefur fram er mfl.kv. í æfingaferð á Egilsstöðum. Veðrið leikur við stelpurnar og öll aðstaða er frábær.
Stelpurnar spiluðu í gær við Völsung frá Húsavík. Leikurinn endaði 1 – 1 og það var Sigrún Auður Sigurðardóttir sem skoraði markið. Álftanes var sterkari aðilinn í leiknum og voru mjög óheppnar að fara ekki með sigur af hólmi.
Stelpurnar leika við heimastúlkur í Hetti á þriðjudagskvöldið og halda síðan heim á miðvikudag.
Meistaraflokkur kvenna ásamt hluta 2. flokks dvelur þessa dagana við æfingar á Egilsstöðum. Það er 21 leikmaður sem fór í ferðina og verður æft tvisvar á dag ásamt því að leiknir verða leikir við Völsung frá Húsavík og heimastúlkur í Hetti. Ferðin er hluti af lokaundirbúningi stelpnana fyrir tímabilið sem hefst um miðjan maí.












Nýleg ummæli við fréttir