Hér er dagbók Bergrúnar, Elínar, Júlíönu og Ásgríms en þau fóru í heimsókn til Watford 22/11 09 – 29/11 09.

Bergrún, Júlíana, Elín og Ásgrímur

 Umfjallanir fjölmiðla:
http://www.boltinn.is/Frettir/Meira/til-reynslu-hja-watford

http://www.fotbolti.net/fullStory.php?id=83794

28/11 laugardagur. ÁHE
Skrítin dagur að baki.  Við vöknuðum kl. 7 í morgun, já mér tókst að ná stelpunum framúr kl. 7 og er það afrek útaf fyrir sig.  Rob náði í okkur kl. 8 og héldum við á æfingasvæði Arsenal kvenna.  Þar voru Arsenal og Watford að fara að keppa í öllum yngri flokkum kvenna. Það eru U16, U14, U12 og U10.  Arsenal er svo til ný flutt á þetta svæði, hafa verið þar í tvö ár. Flott aðstaða með grasvöllum og gervigrasi sem er glænýtt og glæsilegt. Leikur u16 ára liðsins var leikinn á því en aðrir leikir á grasi. Mikið hefur ringt hérna og því eru flestir grasvellir á floti.
Við horfðum aðalega á leik U16 ára liðsins enda er það liðið sem stelpurnar voru að æfðu með.  Það vakti athygli mína að umgjörð leikjana var ekkert til að hrópa húrra fyrir. Dómarinn var ekki af háum standard og línuverðirnir skoppuðu um í hettupeysum og voru að drepast úr áhuga. Þetta kom Rob líka að óvart og var ekki sáttur með þessa hluti.
En þetta var ekki ferð til fjár fyrir Watford. Í u16 leiknum var Watford betra í fyrri hálfleik án þess að skapa sér góð færi.  Arsenal var með líkamlega sterkt lið og náðu þær að setja eitt mark í fyrri hálfleik, mark sem við erum viss um að Elín hefði varið ef hún hefði staðið á milli stangana.
Í seinni hálfleik var Arsenal sterkara og þegar Watford fór að skipta stelpum inná þá seig Arsenal framúr. Leiknum lauk með 3 – 1 sigri Arsenal og sama má segja um alla hina leikina, Watford tapaði þeim öllum.
Rob var ekki ánægður með sínar konur en hann stjórnaði u14 ára liðinu.
Eftir leikinn fékk Rob sms frá formanni klúbbsins sem á völlinn sem aðalliðið spilar á en aðalliðið átti að spila við Everton á morgun.  Var hann að tilkynna Rob að leiknum yrði að fresta þar sem völlurinn væri svo blautur að ekki væri hægt að spila á honum. Þetta er 4 leikurinn í röð sem þarf að fresta á vellinum vegna bleytu og eru Rob og  hans fólk að verða dálítið pirruð á þessu. En ekkert við þessu að gera, Rob hringdi beint í stjóra Everton og lét hann vita, náði þeim rétt áður en þau lögðu af stað með rútunni.
Rob keyrði okkur á lestarstöðina og við tók 1 1/2 tíma lestarferð á leik Crystal Palace og Watford í Coca Cola Championship.  Náðum þangað þegar 10 mínútur voru búnar af leiknum og staðan var þá orðin 2 – 0 fyrir Palace. Heiðar átti ágætis leik og sýndi enn og aftur hve sterkur hann er í loftinu, tapaði valla skallabolta allan leikinn. Honum var skipt útaf á 85. mínútu. Palace vann 3 – 0 og voru vel að sigrinum komnir. Watford klikkaði meðal annars á víti, hefður betur látið Heiðar taka það.
Eftir leikinn var haldið aftur í lestina sem var yfirfull. Komin á hótelið aftur, án þess að sjá Watford vinna leik í dag þótt við hefðum séð 5 leiki með þeim. Dagurinn á morgun í smá uppnámi þar sem leiknum hjá aðalliðinu var frestað, ætli dagurinn fari ekki bara í sjónvarpsgláp, fyrst Everton – Liverpool og síðan ættum við að ná fyrrihálfleik hjá Arsenal og Chelsea áður en við þurfum að fara út á flugvöll en við eigum flug kl. 19 heim.  Bjössi ætlar að sækja okkur út á flugvöll þannig að foreldrar, stelpurnar verða keyrðar heim að dyrum.
Þetta verður síðasta færslan úr þessari ferð, vonandi hafið þið sem fylgst hafið með okkur haft gaman að, eitt er öruggt að okkur þótti gaman og ljóst að ferðin hefur verið lærdómsrík og vel heppnuð.  Nokkrar myndir í lokin að venju, Watford hópur over and out í síðasta sinn í bili…………..

U16 funda fyrir leikinn

Nýr og glæsilegur gervigrasvöllur

Arsenal u16 hita upp

Fylgst með leiknum í miklum kulda

Þröngt á þingi í lestinni

27/11 föstudagur. ÁHE
London, here we come.  Eftir morgunmat fórum við til London og tókum borgina með trompi. Oxford stræti tekið enda á milli og stelpurnar hefðu getað verið mikið lengur að straua kortin.  Setningar eins og “Vá sjáðu, H&M” og “Hey Adidas búð, verð að fara í hana” heyrðust nokkuð oft og fyrir mig sem karlmann þá var þetta orðið nokkuð þreytandi, þið karlmenn sem lesið þetta skiljið mig örugglega.  Einu búðirnar sem ég get hakkað í mig eru íþróttabúðir og voru nokkrar þannig heimsóttar.
Ein var sú búð sem við öll áttum ekki orð yfir var Nike búðin á Oxford. Þar komumst við að því að hægt er að láta búa til fótboltaskó eftir höfði hvers og eins og svo láta merkja þá með þeim texta sem maður vill, t.d. nafni og númeri.  Sama á við um markmannshanska, hægt að láta merkja þá með nafni og númeri.  Elín keypti sér hanska en þeir voru þannig að það var ekki hægt að merkja þá. Bergrúnu langaði í skó en var nýbúin að kaupa sér skó þannig að hún lét það vera, þó eftir mikla umhugsun.
Eftir að hafa þrætt búðirnar var haldið í leiðangur fyrir Bigga þjálfara, þeir sem þekkja Bigga eru örugglega búnir að kveikja á hvaða  leiðangur það var.  Ferðinni var heitið í stóra bókabúð þar sem við áttum að kaupa inn fyrir hann “nokkrar” bækur. Eftir að hafa þrætt göturnar og farið til hægri, vinstri, upp og niður fundum við búðina. En vitið menn, það þurfti kannski ekki að koma að óvart, ekkert af þessum bókum, sem Biggi var búinn að biðja um, var til og því þessi bókabúðarferð til einskis, jú ágætis hreyfing fyrir okkur.
Þá var haldið að London Eye og það var mjög skemmtileg ferð. Útsýnið er frábært og ekki skemmdi fyrir að Elín gat séð Big Ben frá hjólinu, held að hún hafi ekki horft á neitt annað allan tímann og tekið um 200 myndir af Big Ben.
Eftir þetta skelltum við okkur niður á Leicester Square með viðkomu í einni búð, nema hvað. Þar fengum við okkur að borða, kíktum aðeins í kringum okkur og fórum síðan heim á leið og með viðkomu í einni búð. Í þetta skiptið var það undirritaður sem þurfti að versla, keypti mér þessa forláta vefmyndavél.
Hópurinn kominn þreyttur á hótelið, það á að fara í rúmið snemma enda þurfum við að vakna kl. 7 á morgun. Rob kemur að ná í okkur kl. 8 og förum við með u16 ára liði Watford að keppa við Arsenal en leikurinn hefst kl. 10.  Í framhaldi af því ætlum við að skella okkur í lestarferð og fara að sjá leik Crystal Palace og Watford í campionship deildinni, sjá Heiðar Helguson setja eins og eitt mark. Spennandi dagur á enda og spennandi dagur framundan. Nokkrar myndir eins og vanalega, Watford hópur over and out……….

Áki í einum rúllustiganum í neðanjarðarlestunum

Bergrún prufar símaklefa

og Elín líka

Bergrún og idolið

Stelpurnar við London Eye

Áki við London Eye

Útsýni yfir London úr London Eye

Big Ben, bara fyrir Elínu

26/11 fimmtudagur. ÁHE
Stelpurnar hafa verið að vinna í sjálfstrausti og að hafa ánægju af hlutunum. Þær hafa skrifað jákvæð silaboð á miða og eru búnar að líma þá upp í herberginu hjá sér til þess að minna sig á þessa hluti. Sýnishorn af þessu er í myndunum hér að neðan. Flott hjá þeim.
Annars off dagur í dag. Stelpurnar fengu að sofa út í eina skiptið í ferðinni. Eftir að mannskapurinn var komin á lappir var skundað niður í bæ til að fá sér að borða. Upp úr kl. 15 var farið af stað að leita að leigubíl og haldið í heimsókn í Herefield Academy sem er skóli hér í úthverfi Watford. Þetta er skólinn sem ég og Birgir heimsóttum í fyrra og þarna er drengja academya Watford til húsa.  Nick Cox, yfirþjálfari academíunar tók á móti okkur, sýndi okkur hluta af skólanum og síðan var haldið á æfingu þar sem u-12, u-14, u-15 og u-16 voru.  Einig var séræfing fyrir markmennina þar sem við sáum ýmsar skrítnar æfingar þar sem t.d. var notast við tennisspaða og tennisbolta sem og hrúgu af keilum.
Það sem okkur fannst kannski standa upp úr þarna er hve strákarnir eru tæknilega góðir og eins hvað það er hátt tempó á æfingunum hjá þeim. Þetta kom mér ekkert að óvart eftir að hafa verið þarna í fyrra en stelpurnar tóku eftir þessu. Það sakaði ekki að þær sáu síðan eitt og eitt augnakonfekt líka. Það er alltaf gaman að koma þarna og sjá hvernig unnið er með strákunum.
Eftir þessa ferð var haldið í leigubíl niður í miðbæ þar sem við fengum okkur flest að borða og nú erum við komin á hótelið í afslappelsi. Á morgun á að halda til London og verður það örugglega fjörugur dagur.
Eins og vanalega eru nokkrar myndir frá deginum, biðjum að heilsa, over and out………..

Markmennirnir á æfingu.

Frá æfingu u-14 drengja hjá Watford

Stelpurnar stilla sér upp

Æfingatækin prófuð

Ekki spurning!!!

Jákvæð uppbygging!!!

G.Æ.S

25/11 miðvikudagur. ÁHE
Eins og vanalega byrjaði dagurinn á morgunmat, lærdómi og hádegismat. Eins alla dagana.  Eftir hádegi var gefinn frjáls tími og það þarf ekkert að koma að óvart að stelpurnar skelltu sér að versla.  Elín og Bergrún hafa báðar fjárfest í nýjum takkaskóm og þær ásamt Júlíönu einnig í ýmsum öðrum varningi.
Rob kom og náði í okkur klukkan rúmlega 16. Þó svo æfingin hjá okkur hafi ekki verið fyrr en 18:30 þá var Rob með u-14 ára æfingu kl. 17 og því þurftum við að fara snemma. Þegar við komum á æfingasvæðið fór Bergrún í meðferð hjá sjúkraþjálfaranum útaf öklanum sem teygði, beygði og nuddaði öklann. Bergrún er búin að vera teypuð á öllum æfingum heima í góðan tíma en á það vill sjúkraþjálfarinn hér ekki heyra minnst. Margt til í því sem hún segir, öklinn er annað hvort tilbúin á æfingu eða ekki. Eins finnst henni að öklinn styrkist ekki á meðan hann er teypaður og því eigi ekki að teypa nema í algjörum neyðartilfellum, t.d. fyrir leiki ef algjör nauðsyn er.
Stelpurnar æfðu með u-16 í dag og var þetta þeirra besta æfing hingað til. Eins og ég sagði við þær að ef þær væru hér í viku í viðbót þá væru þær orðnar stjörnur, bætingin er búin að vera þannig frá fyrstu æfingu. Eins og ég hef sagt áður þá snýst þetta um þor og trú númer 1 2 og 3 því getan er til staðar hjá þeim.
Á miðri æfingunni var Elín kölluð yfir á aðalliðsæfinguna því þar var að byrja 11 á móti 11 leikur, aðalliðið á móti restinni af æfingahópnum. Markmaður 16 ára liðsins var líka kallaður yfir og tók sér stöðu í marki aðalliðsins. Það var ekki alveg það sem þjálfarinn vildi og sagði henni að fara yfir í mark varaliðsins en setti Elínu í mark aðalliðsins þar sem hún stóð sig mjög vel. Eins og fram hefur komið erum menn hér mjög ánægðir með frammistöðu stelpnanna og hafa hrósað þeim. Síðan hafa þeir talað um að Elín sé mikið efni sem gaman verði að fygjast með í framtíðinni sem og hinum. Það sem þeim finnst aðalega vanta hjá Bergrúnu og Júlíönu er að þær hreyfi sig meira án bolta, opni upp svæði fyrir meðspilara sína.
Eftir æfinguna fylgdumst við með fundi hjá aðalliðinu þar sem verið var að fara yfir skipulag vegna leiksins um helgina. Watford á þá leik heima við Everton. Sérstaklega var gaman að heyra í þjálfaranum fara yfir varnarleikinn, sá fyrirlestur opnaði margar hurðir í hausnum á mér og fékk mann til hugsa þessa hluti aðeins upp á nýtt.
Rob keyrði okkur síðan á hótelið og nú sit ég hér, horfi á United tapa fyrir Besiktas sem er slæmt.
Morgundagurinn mun verða með þeim rólegri, nokkurskonar day off. Við förum kl. 16 að hitta Nick Cox sem er yfirþjálfari karlaakademíunnar og var mentorinn okkar Bigga hér í fyrra. Þar ætlum við að skoða Herefield skólann og fylgjast með æfingu hjá Nick.
Góður dagur að kveldi kominn, Watford hópur over and out….

Áki klár á æfingu

Bergrún Jónasdóttir

Elín Jóhannsdóttir

Júlíana Sigurgeirsdóttir

Aðalliðið eftir æfingu, á leið á fund

Hópurinn með þjálfurunum, Rob annar frá vinstri.

24/11 þriðjudagur. ÁHE
Dagurinn í dag var nokkuð góður. Eftir æfinguna í gær ræddum við fjögur aðeins um það að hafa trú á sjálfum okkur og því sem við erum að gera.  Stelpurnar voru á æfingunni í gær nokkuð stressaðar, sérstaklega tvær, og þorðu ekki að vera þær sjálfar, höfðu ekki trú á því að þær réðu við verkefnið.  Saman ákváðum við að æfingin í dag yrði betri en í dag æfðu þær með varaliði Watford.
Dagurinn byrjaði eins og alltaf, farið í morgunmat kl. 9 og svo milli 10 og 12 lágu þær yfir bókunum, meira segja þannig að þeim tókst að dotta yfir lærdómnum, fengu skammir í hattinn fyrir það. Klukkan tólf tilkynnti ég þeim að þær ættu von á gesti kl. 13 og ættu að undirbúa sig fyrir það.
Upp úr klukkan 13 mætti svo gesturinn og var það Heiðar Helguson sem er goðsögn hér í Watford. Held að stelpurnar hafi verið mikið stressaðar fyrir að hitta hann en það hvarf fljótlega þegar þau settust niður. Hann fór  yfir með þeim hvernig þær ættu að yfirstíga stressið, ættu að vera þær sjálfar og reyna að gera hlutina auðvelda áður en þær færu að reyna krydda þá með einhverju öðru. Frábært að fá hann í heimsókn og þökkum við honum kærlega fyrir heimsóknina.
Eftir að Heiðar var farinn þá fórum við niður í bæ og fengum okkur að borða.  Eftir það duttu stelpurnar inn í “mallið” til að skoða í búðir. Voru komnar upp á hótel kl. 18 til að undirbúa sig fyrir æfingu.
Rob sótti okkur kl. 18:45 og héldum við á æfingu. Æfingin í dag var á sama stað og ég og Birgir eyddum sem mestum tíma þegar við vorum hér fyrir ári, Herefield Academy, en þar er karla akademía Watford.  Á æfingunni voru bæði aðalliðið og varaliðið. Stelpurnar æfðu með varaliðinu og stóðu sig bara nokkuð vel. Allt annað var að sjá til þeirra en í gær, sjálfstraustið var á uppleið og þær þorðu að hafa sig meira frammi en í gær.  Elín átti eðal æfingu og oftar en ekki stóðu englendingarnir á öndinni yfir þeim markvörslum sem hún sýndi, misstu hreinlega kjálkann í grasið. Frábært hjá henni. Bergrún og Júlíana stóðu sig líka vel og var gaman að sjá þær stíga upp frá því í gær. Allar geta þær þó betur og eru ákveðnar í að sýna það á æfingunni á morgun en þá æfa þær aftur með unglingaliðinu.
Stelpurnar eru strax farnar að tala um hvernig stelpurnar sem hingað vonandi fara á næsta ári frá Álftanesi verða að undirbúa sig.  Sjálfstraustið verður að vera í lagi og viljinn til þess að sýna hvað í manni býr. Maður þarf að vera maður sjálfur, ekki vera hræddur við það að sýna hvað maður getur. Þær munu eftir ferðina skrifa skýrslu um ferðina þar sem þær fjalla um þetta og ýmislegt annað.
Eftir æfingu fórum við á TGI Fridays til að næra okkur og erum núna komin á hótelið. Stefnan er tekin á rúmið því á morgun tekur við annar viðburðarríkur dagur.

Enn og aftur nokkrar myndir frá deginum, biðjum að heilsa heim, Watford hópur over and out……

Stelpurnar í sambandi við umheiminn.

Sest niður með Heiðari Helgusyni

Stelpurnar gera sig klárar fyrir æfinguna.

Á æfingu, athyglisverð upphitunaræfing

Á TGI Fridays eftir æfinguna

Jólin koma, Elín byrjuð að kíkja á pakkana

23/11 mánudagur.  

kæra dagbók ….
í dag urðum við allar ástfangnar , við viljum taka það fram MAGGA OG ELÍN að það eru fullt fullt af sætum fiskum hérna á hótelinu .. if you know what we mean !

Við vöknuðum í dag kl: 8:30 eftir að einhver brjálaður karl hringdi í hótelsímann og vakti okkur og hann sem var búin að segjast ætla að vekja okkur kl 9:00 en neinei getiði hvað hann hringdi kl 8:30 takk fyrir takk !
Þá fórum við niður í morgunmat og fengum alveg stórkostlegann mat, og eftir það fórum við upp á herbergi og tókum 2 tíma í lærdóm gott fólk.. þegar það var búið þá var leiðinni haldið á Subway og þar þurftum við að tala ensku SJÁLFAR sem var skrautlegt skulum við segja ykkur , þar þurftum við að segja mörg orð þar sem við höfum aldrei heyrt áður á ensku meðal annars ; kál og gúrka , og ekki nóg með það þá hlógu afgreiðslukonurnar af okkur.
Eftir það tókum við góðan tíma í íþróttabúð og þar lentum við í starfsfólki sem gat ekki brosað.  Svo gerðist alveg STÓRKOSTLEGUR atburður sem bjargaði deginum.. þið vitið nú öll að hann Ásgrímur er ekki sá stærsti maður sem við þekkjum en lentum við hjá taxabílstjóra sem var á svaðalegum kagga og viti menn hann Áki sat í svala kagganum með hausinn út um topplúguna og hlógum við þrjár eins og mestu gelgjur afturí og greyið bílstjórinn vissi ekki hvað á sig veðrið stæði og var ekkert rosa sáttur.

Hausinn á Áka í topplúgunni

Áki og bílstjórinn

Svo komum við á hótelið og voru töskurnar hjá Áka og Bergrúnu LOKSINS komnar. Svo tókum við æfingardótið saman því hann Rob sem á btw geðveikan bíl kom og sótti okkur, hann er aðalþjálfari U-14 og aðstoðarþjálfari aðalliðsins og yfirmaður akademíunar, við fórum á skrifstofu WFC og ræddum við hann og sagði hann okkur frá öllu sem er að gerast í kvennaboltanum hjá Watford. Svo gaf hann okkur öllum æfingagalla til að vera í á æfingum og einnig jakka. Síðan hittum við þjálfarann okkar aðeins og töluðum smá við hann. Síðan fórum svo á æfingu hjá U-16 og í sannleika sagt þá voru þessar stelpur ótrúlega góðar vááá sæll venner sko. Þegar við komum upp á hótel fengum við okkur að borða og er það í fyrsta og allra síðasta skipti sem við borðum hérna, ódýrara að borða annarsstaðar !!  Þegar við vorum búnar að borða ákváðum við að fara í sjoppuna sem er hinu megin við götuna og á hún ábyggilega eftir að stórgræða á okkur því við höfum ekkert annað að gera á kvöldin nema að labba þangað yfir götuna… kannski skoða strákana á hótelinu en viti menn í búðinni átti Bergrún sér eitt af sínum ótrúlegum mómentum og öskraði upphátt að maður væri með svaka plömmer og gleymdi að plömmer væri enskt orð og  Júlíana og Elín hlógu sig máttlausar! Nú sitjum við hér að blogga þennan skemmtilega texta og ætlum við feitabollurnar Bergrún og Júlíana að drífa okkur í sturtu svo við kæfum ekki greyið Elínu úr svitalykt. Góða nótt kæra fólk og skemmtið ykkur þarna á Íslandi í litlu kringlunni ykkar á meðan við höfum STÓRT moll sem við villtumst í.

Nokkrar myndir frá deginum í lokin:

Elín t.h. með markmannsþjálfaranum t.v.

Við í æfingagöllunum

Bergrún í meðferð hjá sjúkraþjálfaranum

Verslunarmiðstöðin stóra

Bergrún, Júlíana og Elín, over and out ! … ROCK ON !!!!!!!

22/11  sunnudagur.   ÁHE.
Við vorum öll komin á fætur snemma enda áttum við flug til London kl. 7. Vorum komin út á völl rúmlega 5 og fengum okkur að borða upp á velli og kíktum aðeins í búðir. Eitthvað sagði mér þá að þetta yrði ekki í síðasta skiptið sem ég þyrfti að bíða eftir stelpunum í búðum. 
Flugið var gott enda voru aðeins nokkrar hræður í vélinni og því var auðvelt að leggja sig. Ballið byrjaði þegar við lentum. Fyrstu vandræðin urðu þegar við vorum að fara í gegnum vegabréfaskoðunina. Þar sem Elín er ekki orðin 16 ára þurfti að gefa vegabréfaeftirlitinu góða skýringu hvað hún væri að gera ein með ókunugum á ferð á milli landa. Eftir að hafa útskýrt tilgang ferðarinnar fyrir þeim var henni hleypt inn í landið. Þá var komið að því að fara að ná í töskurnar.  Töskurnar skiluðu sér ekki allar, taskan mín og taskan hennar Bergrúnar eru nú einhversstaðar á flakki um Evrópu eða bíða rólegar heima í Keflavík. Þetta þýðir að við erum allslaus, það eina sem við höfum eru fötin utan á okkur og nokkrir hlutir sem voru í bakpokum.  Verst er að ef töskurnar koma ekki fyrr en seint á morgun þá er Bergrún allslaus fyrir æfinguna á morgun. Vonandi tekst þeim sem eru að leyta að finna töskurnar og koma þeim til okkar í tíma fyrir æfinguna.
Eftir að hafa fyllt út pappíra útaf töskunum hlupum við og náðum í lestina hingað upp til Watford. Ferðin gekk vel og komum við á hótelið um kl. 13. Herbergin voru ekki til og fórum við því niður í bæ til þess að fá okkur að borða.  Síðan var komið að því, stelpurnar náðu að stinga nefinu inn í verslunarmiðstöð og þá var ekki aftur snúið. Grunur minn var því réttur og ég sé fram á fleiri búðarferðir á næstunni.
Nú erum við upp á hóteli að slaka á og ætlum síðan að finna okkur einhvern stað til að borða á þegar líður á kvöldið.
Planið á morgun er að vakna kl. 9 og fara í morgunmat. Síðan höfum við tekið frá tímann milli 10 og 12 alla dagana fyrir stelpurnar að læra, þær eiga jú að fara í próf fljótlega eftir að við komum heim. Síðan förum við á hádegismat og slökum á fram að 16:00 en þá mun Rob, formaður Watford Ladies FC, koma og ná í okkur til þess að sína okkur svæðið og fara með okkur á æfingu.
Biðjum að heilsa öllum heima og ef þið sjáið töskurnar okkar á hlaupum þá sendið þær til okkar. Setjum nokkrar myndir hér frá deginum.

Bergrún, Elín og Júlíana

Í flugvélinni

Elín og Júlíana