Eftir tímabilið í fyrra sagði Ásgrímur upp sem þjálfari mfl.kv. vegna mikilla anna í vinnu og viljum við þakka honum fyrir vel unnin störf. Í hans stað var ráðinn Sveinn Guðmundsson sem þjálfaði 2.fl á seinasta tímabil og mun hann þjálfa báða flokkana.
Stelpurnar hófu að æfa í október einu sinni í viku og það var bætt við einni æfingu í nóvember. Það var viljandi farið mjög rólega af stað fyrir áramót en svo á að gefa í eftir áramót þar sem æfingum verður fjölgað.
2.fl hefur nú þegar spilað 2 leiki í Faxaflóamótinu þar sem annar tapaðist á móti Fylki 4-2 og hinn vannst 2-1 á móti ÍR. Einnig spiluðu þær á Futsalmótinu þar sem þær enduðu í 2.sæti í sínum riðli og komust ekki áfram. Þær eiga svo leik strax 6.jan á móti Fjölni í Faxaflóamótinu.
Meistaraflokkurinn mun byrja að spila í Faxaflóamótinu 8.jan á móti Keflavík í Reykajneshöllinni.






Skrá ummæli
Comments feed for this article