Olga Kristina hefur verið lánuð til KR út tímabilið. Olga sem kemur frá Færeyjum kom til Álftaness í byrjun tímabilsins og hefur leikið alla leiki liðsins á þessu sumri og skorað eitt mark. Olgu verður sárt saknað en við fögnum þeim möguleika að hún geti spilað í efstu deild og þannig fengið mikla reynslu sem á eftir að nýtast henni í framtíðinni.
En við höfum líka fengið liðsstyrk í glugganum.  Markmaðurinn Elín Helena Jóhannsdóttir er komin heim eftir tæplega tveggja ára veru í Breiðablik og reynsluboltinn Guðrún Sveinsdóttir er komin frá FH.  Það er frábært að fá þessar tvær í viðbót við þann frábæra hóp sem fyrir er.
 

Olga Kristina

Elín

Guðrún Sveins