Fyrsti sigur tímabilsins er komin í hús. Stelpurnar sigruðu lið Fjarðarbyggðar/Leiknis á sunnudag 2 – 1 á Bessastaðavelli.
Við vorum stekrari aðilinn í leiknum frá byrjun og það var gegn gangi leiksins þegar Una Sigríður Jónsdóttir, besti leikmaður Fjarðarbyggðar, skoraði á 12 mínútu eftir að hafa sloppið inn fyrir vörnina. Það var svo á 41. mínútu að Ashley slapp inn fyrir vörnina hjá þeim og jafnaði metin.
Staðan 1 – 1 í hálfleik. Ashley bætti svo við marki á 63. mínútu og tryggði langþráðan sigur okkar stelpna.
Maður leiksins var valin fyrirliðin Sigrún Auður, hún átti flottan leik á vinstri kantinum í fyrri hálfleik og magnaðan leik í stöðu vinstri bakvarðar í þeim síðari.
Næsti leikur hjá stelpunum er á miðvikudaginn 20. júlí í Kapplakrika við FH. Leikurinn hefst kl. 20:00.







Nýleg ummæli við fréttir