Fríða

Fríða Þórisdóttir hefur gengið frá félagaskiptum yfir í Álftanes og hefur fengið leikheimild frá 15. júlí þegar félagaskiptaglugginn opnar.
Fríða kemur frá Þrótti og hefur verið þar síðan 2005 er hún skipti frá Álftanesi. Því má segja að hún sé komin heim.
Fríða var fyrirliði Þróttar í fyrra þegar liðið tryggði sér sæti í Pepsi deildinni en hefur ekki fengið tækifæri með Þrótti á þessu tímabili.  Við bjóðum Fríðu velkomna heim.