Á miðvikudag spiluðu stelpurnar við HK/Víking á Bessastaðavelli. Það er skemmst frá því að segja að stelpurnar sáu aldrei til sólar í þeim leik og töpuðu 0 – 2.
Fyrri hálfleikur var slakur af okkar hálfu og fór HK/Víkingur með 0 – 2 forystu inn í hálfleik. Síðari hálfleikur var jafnari en okkar stelpum tókst ekki að minnka muninn og því var tap gegn HK/Víking staðreynd.
Stelpurnar spila næst við Hött og Fjarðabyggð/Leikni  um næstu helgi fyrir austan.