Meistaraflokkur kvenna tapaði í gær fyrir ÍA í Valitorbikarnum, 32. liða úrslitum.
Fyrri hálfleikur var slakur af hálfu Álftanes og voru ÍA stelpur meira með boltann án þess að skapa sér mikið af færum. Fyrra markið kom eftir hornspyrnu þar sem leikmaður þeirra fékk svo að segja að skalla boltann í netið óáreitt. Litlu munaði að Álftanesi tækist að jafna strax í næstu sókn þegar skot Völu fór rétt yfir markið. Lítið fleira gerðist í fyrri hálfleik.
Okkar stelpur komu hressari í síðari hálfleikinn og meira jafnræði var með liðunum þá. ÍA stúlkur bættu við marki undir lokin eftir mistök í vörninni. Illa gekk að koma boltanum frá sem varð til þess að ÍA tókst að skora.
Lið ÍA er ungt, flestar stelpurnar þar eru í 2. flokki og eiga framtíðina fyrir sér. Það er hins vegar ljóður á þeirra leik hve óheiðarlegar þær eru, klípingar og ristarástíganir eru eitthvað sem þeim virðist í blóð borin. Vonandi láta þær af þeirri iðju.
Slæmu fréttirnar eru að bæði Selma og Katrín Ýr meiddust í leiknum og ekki er vitað hve lengi þær verða frá. Selma fékk slæmt spark í hné og Katrín snéri sig á ökla. Langt er í næsta leik, 15. júní heima gegn HK/Víkning, þannig að tíminn vinnur með okkur varðandi þessi meiðsl.
Álftnesingur leiksins var kosin Olga Kristina.







Nýleg ummæli við fréttir